Skip to content

Protera ráðgjöf

Sérhæfð ráðgjöf í stefnumótun, sölu og markaðsstarfi sem skilar árangri.

Protera hjálpar stjórnendum að skilja kjarnann frá hisminu, móta stefnu og umbreyta henni í árangur. Fókusinn er á sókn, samskipti og menningu sem fólk trúir á.

Með skýrum markmiðum, öguðum vinnubrögðum og hagnýtingu tækni byggjum við upp forskot sem endist.

Forskot

Sérhæfing Protera

Sérhæfing mín felst í að þýða stefnu yfir í skýr markmið, verkferla og framkvæmdir, með sérstakri áherslu á sölu og markaðssókn.

Ég hjálpa fyrirtækjum að tengja stefnu við samskipti, sölu og markaðssókn til að skapa árangur sem verður sýnilegur í rekstri. Með því að skýra tilgang, samræma skilaboð og virkja fólk utan um sameiginleg markmið myndast hreyfiafl.

Stefna í framkvæmd

Hvort sem er í umbreytingu eða uppbyggingu vörumerkis legg ég áherslu á að tengja fólk, menningu, stefnu og aðgerðir saman til að hreyfa hlutina áfram.

Út frá þessum grunni vinn ég með fyrirtækjum, m.a. í eftirfarandi þjónustuþáttum:

Markaðstækni

Ég elska að finna leiðir til að einfalda hlutina og hef reynslu af að hagræða með sjálfvirkni og nýtingu gervigreindar t.d. í CRM, efnisgerð og árangursmælingum.

Protera er samstarfsaðili Fyr.ai sem er snjöll lausn sem hjálpar fyrirtækjum að hagnýta gögn og gervigreind í markaðsstarfi.

Þjálfun

Ég býð upp á þjálfun í áhrifaríkum kynningum sem styðja sölu á vörum og lausnum, miðlun hugmynda og framsetningu á sýn og stefnu.
Þjálfunin getur verið sérsniðin að markmiðum fyrirtækisins.

Reglulega höldum við opin námskeið.

Vinnustofur

Ég stýri vinnustofum sem hjálpa teymum að skilgreina virðisloforð, móta go-to-market stefnu, efla vöruþróun, samræma samskipti og setja skýr markmið og verkferla í sölu og markaðsstarfi.


Áherslan er á samstillingu, ákvarðanir og að færa hugmyndir yfir í aðgerðir.

Leiðtogi til leigu

Ég tek að mér hlutverk tímabundins eða hlutastarfandi markaðsstjóra eða umbreytingaleiðtoga fyrir fyrirtæki sem vilja efla sókn með aðkomu reynslumikils leiðtoga.
Saman skilgreinum við árangur, ábyrgð og eftirfylgni, svo teymið vinni markvisst að sameiginlegum markmiðum. Ég rýni og móta ferla, stefnu og nálgun sem styður við vöxt fyrirtækisins og kalla inn sérfræðinga úr mínu neti þegar þörf krefur.

Um mig

Á bak við Protera stendur Lóa Bára Magnúsdóttir, leiðtogi með yfirgripsmikla reynslu af vöruþróun, sölu, markaðssetningu og nýsköpun.

,,Ég stofnaði Protera til að nýta reynslu mína í hagnýta ráðgjöf.

Eftir að hafa leitt rekstur, sölu- og markaðsstarf hjá Origo, Cloetta og Orkla lærði ég að árangur byggir á þremur hlutum: skýrri stefnu, menningu sem styður hana, og framkvæmd sem fylgir eftir.

Í dag vinn ég með stjórnendum sem vilja skapa forskot sem endist."

Þegar verkefnið krefst fleiri handa vinn ég með reyndu fólki úr mínu tengslaneti – þannig sameinum við stefnu, markaðs- og söluhugsun sem skilar raunverulegum árangri.

LoaBaraMagnusdottir

Hafðu samband

Ertu með áskorun sem ég gæti hjálpað þér með? Sendu mér endilega línu. Ég hlakka til að heyra frá þér.