Skip to content

Protera ráðgjöf

Umbreyting, stefna og sókn sem skilar árangri

Ég vinn með stjórnendum fyrirtækja að stefnumótun, umbótum og sölu- og markaðssókn. Hvort sem um er að ræða afmarkað verkefni, vinnustofu eða tímabundið leiðtogahlutverk er markmiðið alltaf að styrkja rekstrargrunn og skapa vöxt.

Forskot

Hvernig get ég hjálpað?

Þarf að leiða breytingar?

Fyrir fyrirtæki sem standa frammi fyrir umbreytingum eða innleiðingu nýrrar stefnu. Ég styð stjórnendur með skýrri breytingaáætlun, öflugum samskiptum og markvissri framkvæmd sem eykur líkur á árangri.

Vantar reynslumikinn stjórnanda tímabundið?

Þegar fyrirtækið þarf aukinn framkvæmdakraft stíg ég inn tímabundið sem framkvæmdastjóri eða umbreytingaleiðtogi.

Vantar meiri árangur í sölu og markaðssókn?

Þegar markmiðið er að auka tekjur og bæta framkvæmd. Ég styrki söluferli, KPI, CRM og eftirfylgni þannig að teymið vinni markvissar að sameiginlegum markmiðum.

Vantar öflugan fundarstjóra eða vinnustofu?

Þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir eða samræma stór teymi. Ég tek að mér fundarstjórn og leiði stefnumótunardaga og stjórnendavinnustofur.

Vantar betri yfirsýn og skilvirkari vinnubrögð?

Ég hjálpa fyrirtækjum að nýta gögn, markaðstækni og gervigreind til að styðja við betri ákvarðanir og skilvirkari framkvæmd.

Vantar meiri fókus og skýrari stefnu?

Þegar stjórnendateymi þarf að forgangsraða. Ég hjálpa stjórnendateymum að skapa sameiginlega sýn og umbreyta stefnu í skýra framkvæmdaáætlun.

Öll verkefni byrja á samtali

Frá stefnu til framkvæmdar

Ég vinn með stjórnendum að því að skilja kjarnann frá hisminu, skapa sameiginlega sýn og beina orku fyrirtækisins að því sem skilar mestum árangri.

Hvort sem verkefnið snýr að umbreytingu, sölu, markaðssókn eða uppbyggingu nýrra tekjustoða legg ég áherslu á skýra forgangsröðun, mælanleg markmið og öguð vinnubrögð sem gera framkvæmdina einfaldari og árangursríkari.

Ég tek að mér bæði afmörkuð verkefni og lengri samstarf þar sem ég vinn sem ráðgjafi, vinnustofustjóri eða tímabundinn leiðtogi eftir því sem verkefnið krefst.

Markaðstækni og mælaborð

Ég hjálpa fyrirtækjum að skapa bætta yfirsýn, skilvirkni og betri ákvarðanir með markaðstækni.

Áherslan er ekki á tæknina sjálfa heldur á ferlana sem liggja að baki, allt frá söluferlum, samskiptum við viðskiptavini og markmiðasetningu yfir í eftirfylgni og árangursmælingar. Með skýrari ferlum og gögnum verður tæknin öflugra verkfæri til vaxtar og bættrar framkvæmdar.

Protera er samstarfsaðili Fyr.ai, sem hjálpar fyrirtækjum að hagnýta gögn og gervigreind til að einfalda vinnu, bæta yfirsýn og styðja við markvissari ákvarðanatöku.

Þjálfun í samskiptum og kynningum

Ég býð upp á þjálfun, bæði sjálf og í samstarfi við aðra framúrskarandi þjálfara þegar þörf er á. Þjálfunin miðar að því að efla leiðtoga í samskiptum og áhrifum.

Þjálfunin getur verið í minni eða stærri hópum og sérsniðin að markmiðum fyrirtækisins.

Reglulega eru auk þess haldin opin námskeið.

Námskeið í áhrifaríkum kynningum styður sölu á vörum og lausnum, miðlun hugmynda og framsetningu á sýn og stefnu sem fær fólk með í lið.

Vinnustofur í stefnumótun

Ég stýri hagnýtum vinnustofum sem hjálpa stjórnendum og teymum að skapa meiri fókus, skýrari forgangsröðun og sterkari framkvæmd í sölu- og markaðsstarfi.

Dæmi um vinnustofur:

  • Frá stefnu í framkvæmd: markmið, KPI og ábyrgð
  • Go-to-market og markaðssókn
  • Söluferli og eftirfylgni
  • Virðisloforð og staðfærsla
  • Commercial roadmap og árshjól

Áherslan er á samstillingu, skýrar ákvarðanir og að færa hugmyndir yfir í aðgerðir sem skila árangri.

Leiðtogi til leigu

Ég tek að mér hlutverk tímabundins eða hlutastarfandi stjórnanda, markaðsstjóra eða umbreytingaleiðtoga fyrir fyrirtæki sem vilja efla sókn með aðkomu reynslumikils leiðtoga.
Fyrirtæki fá aðgang að reynslumiklum stjórnanda sem tekur ábyrgð á sókn og árangri. Saman skilgreinum við árangur, ábyrgð og eftirfylgni, svo teymið vinni markvisst að sameiginlegum markmiðum. Ég rýni, móta og innleiði ferla, stefnu og nálgun sem styður við vöxt fyrirtækisins og kalla inn sérfræðinga úr mínu neti þegar þörf krefur.

Um mig

Á bak við Protera stendur Lóa Bára Magnúsdóttir, rekstrarleiðtogi með 20 ára reynslu af sölu, markaðssókn, vöruþróun, nýsköpun og umbreytingum hjá fyrirtækjum á borð við Origo, Orkla og Cloetta.

„Ég trúi því að árangur byggist sjaldnast á því að gera meira. Hann byggist á því að velja betur og beina orkunni þangað sem hún skilar mestum árangri. Reynslan úr alþjóðlegu og samkeppnisdrifnu umhverfi hefur kennt mér að skýr stefna, öflug samskipti og markviss framkvæmd eru óaðskiljanleg. Þegar þessir þættir vinna saman verða hugmyndir að raunverulegum framförum."

Protera varð til, til að vinna með stjórnendum að ná árangri. Með því að takmarka sóun, umbreyta stefnu í framkvæmd og skapa varanlegan árangur.“

LoaBaraMagnusdottir

Hafðu samband

Ertu með áskorun sem ég gæti hjálpað þér með? Sendu mér endilega línu. Ég hlakka til að heyra frá þér.

Bloggið