Skip to content
Ahrifarikar kynningar
stefnumótun samskipti leiðtogar

„Ég er búin að segja þetta tíu sinnum… af hverju gerist samt ekkert?“

Lóa Bára Magnúsdóttir
Lóa Bára Magnúsdóttir

Þú situr á fundi. Þú hefur farið yfir þetta áður. Oftar en einu sinni.

Samt spyr einhver spurninga sem þú svaraðir í síðustu viku. Eða enn verra, enginn spyr né bregst við á nokkurn hátt.

Þá kemur þessi hugsun sem margir leiðtogar þekkja:

„Ég skil þetta ekki. Af hverju bregðast þau ekki við?

Ég er búin(n) að segja þetta svo oft."

Þetta er algeng áskorun hjá leiðtogum sem leiða umbreytingu. (Játning, ég er ein þeirra).

Vandinn er ekki þú, heldur bilið á milli ykkar

Leiðtogar vinna oft fram í tímann og horfa á stóru myndina. Þeir lifa í veruleika sem er ekki enn orðinn að veruleika fyrir aðra.

Á sama tíma er starfsfólk önnum kafið í daglegum verkefnum, með sín eigin forgangsmál og annað samhengi. Þess vegna lenda skilaboðin ekki.

Vandamálið er sjaldan að leiðtoginn sé beint óskýr. Heldur að skilaboðin eru ekki að mæta fólkinu á þeirra eigin forsendum.

Ef tenginginguna vantar, fara skilaboðin inn um annað eyrað og út um hitt, sama hversu oft þau eru endurtekin.

Af hverju ekkert gerist

Í flestum tilfellum er vandinn ekki beint hvað að sagt, heldur að skilaboðin eru ekki sett fram þannig að þau skapi virði fyrir viðmælendann og virka hlustun.

Fólk:

  • sér ekki hvernig þetta tengist þeirra daglega starfi
  • skilur ekki af hverju þetta skiptir máli núna
  • veit ekki hvað það á að gera með upplýsingarnar

Þannig að það gerir… ekkert.

Við eigum til að ofmeta eigin skýrleika. Og vanmeta þörfina á samhengi.

Við hugsum að við höfum sagt þetta skýrt. Við sendum skilaboðin. En spurningin sem skiptir máli er: Voru þau móttekin hjá þeim sem áttu að bregðast við?

Ef skilaboðin:

  • skapa ekki skýrt virði fyrir viðkomandi
  • tengjast ekki við raunveruleika þeirra
  • og enda ekki á skýru næsta skrefi

þá er eðlilegt að viðbrögðin séu lítil eða engin.

Prófaðu þetta fyrir næsta fund

Áður en þú ferð í næstu kynningu eða starfsmannafund, svaraðu þessum þremur spurningum:

  • Af hverju ætti þetta að skipta þetta fólk máli núna?
  • Hvað breytist fyrir þau ef þau bregðast við?
  • Hvað vil ég að þau geri nákvæmlega?

Ef þetta er ekki skýrt hjá þér, verður það ekki skýrt hjá þeim.

Það er hægt að byggja þetta upp markvisst

Áhrifaríkar kynningar snúast ekki bara um að koma upplýsingum frá sér, heldur um að byggja skilaboðin þannig að móttakandinn taki við þeim.

Sterkustu umbreytingaleiðtogarnir eru í raun þrusu sölumenn, sem geta selt hugmyndir, stefnu og sýn þannig að hópurinn kaupi það. Ekki vegna þess að þau séu hlýðin heldur vegna þess að þau skilja og trúa því.

Sterkar, sannfærandi kynningar:

  • fanga athygli og skapa samhengi
  • gera vandamálið raunverulegt og persónulegt
  • sýna skýra leið áfram
  • byggja upp trúverðugleika
  • og enda á skýru ákalli um aðgerðir

Þetta er það sem færir þig frá því að segja eitthvað yfir í að fólk til að bregðast við.

Viltu vita meira?

Deildu þessum hugleiðingum