---
title: Skilmálar Protera ráðgjafar
description: Protera ráðgjöf hjálpar stjórnendum að móta stefnu, efla sölu og markaðsstarf og skapa vöxt með skýrum markmiðum og framkvæmd sem skilar árangri.
image: https://protera.is/hubfs/Proteratransparent-2.png
---

[Skip to content](https://protera.is/skilmalar#main-content)

[![ProteraLogo](https://protera.is/hs-fs/hubfs/Proteratransparent-2.png?width=544&height=332&name=Proteratransparent-2.png)Homepage](https://protera.is?hsLang=is)

- [Þjónusta](https://protera.is?hsLang=is#Serhaefing)
- [Námskeið](https://protera.is/is/ahrifarikar-kynningar-namskeid?hsLang=is)
- [Tækni](https://protera.is/fyr?hsLang=is)
- [Um mig](https://protera.is?hsLang=is#Ummig)

[Hafa samband](https://protera.is/samband?hsLang=is)

- [Þjónusta](https://protera.is?hsLang=is#Serhaefing)
- [Námskeið](https://protera.is/is/ahrifarikar-kynningar-namskeid?hsLang=is)
- [Tækni](https://protera.is/fyr?hsLang=is)
- [Um mig](https://protera.is?hsLang=is#Ummig)

[Hafa samband](https://protera.is/samband?hsLang=is)

# Skilmálar

## Persónuverndarstefna

Protera ehf. leggur áherslu á ábyrga og örugga meðferð persónuupplýsinga í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR).

Við vinnum eingöngu þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf, eiga samskipti við viðskiptavini og sinna markaðsstarfi.  
Upplýsingar sem skráðar eru í gegnum eyðublöð á vefnum eru vistaðar í HubSpot CRM-kerfi.

Persónuupplýsingar eru ekki miðlaðar til þriðju aðila nema að það sé nauðsynlegt vegna lagaskyldu eða þjónustu sem þú hefur óskað eftir.  
Þú átt rétt á aðgangi að, leiðréttingu og eyðingu persónuupplýsinga, auk þess að afturkalla samþykki hvenær sem er.

## Skilmálar námskeið

Skráning á námskeið hjá Protera ehf. er bindandi frá þeim tíma sem skráning er móttekin.Við skráningu fær viðskiptavinur sendan reikning og skuldbindur sig til að  
greiða innan eindaga, þó eigi síðar en áður en námskeið hefst.

Greidd þátttaka í námskeiði er ekki endurgreidd, nema  
námskeiði verði aflýst af hálfu Protera ehf. Ef þátttakandi forfallast má viðskiptavinur nýta skráð sæti fyrir annan starfsmann, að því  
tilskildu að tilkynnt sé um það til Protera ehf. með hæfilegum fyrirvara fyrir upphaf námskeiðs.

Ef námskeiði er aflýst af hálfu Protera ehf. er viðskiptavinum boðin ný dagsetning eða full endurgreiðsla.

Ofangreindir skilmálar gilda um alla skráða þátttakendur og viðskiptavini, hvort sem þeir  
skrá sig beint eða eru skráðir af hálfu vinnuveitanda.

Ef einstaklingur (neytandi) kaupir námskeið í eigin nafni, gilda ákvæði laga nr. 16/2016 um neytendasamninga, meðal annars um rétt neytanda til að falla frá fjarsölusamningi innan 14 daga, eftir því sem við á.

## Skilmálar Commercial coaching ör-ráðgjafar

Bókun á Commercial coaching fundi hjá Protera ehf. telst staðfest þegar bókun hefur verið framkvæmd í bókunarkerfi og staðfesting borist viðskiptavini.

Fundur er 60 mínútur og fer að jafnaði fram í gegnum Google Meet, nema annað sé sérstaklega samið. Verð þjónustunnar kemur fram við bókun.

**Breytingar og afbókanir**  
Hægt er að færa eða afbóka bókaðan tíma án gjalds með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara. Sé fundi aflýst með skemmri fyrirvara, eða viðskiptavinur mætir ekki í bókaðan tíma, áskilur Protera ehf. sér rétt til að innheimta fullt gjald fyrir tímann.

Ef Protera þarf að færa eða aflýsa fundi er viðskiptavini boðinn nýr tími eða endurgreiðsla, hafi þjónustan þegar verið greidd.

**Eðli þjónustunnar**  
Commercial coaching er ráðgjafar og speglunarþjónusta sem ætlað er að hjálpa viðskiptavini að greina stöðu, móta valkosti og skýra næstu skref. Endanlegar ákvarðanir og framkvæmd þeirra eru á ábyrgð viðskiptavinar. 

**Trúnaður**  
Upplýsingar sem viðskiptavinur deilir í tengslum við ráðgjöfina eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

[Hafa samband](https://protera.is/skilmalar#Hafdusamband)

## Hafðu samband

Ertu með áskorun sem ég gæti hjálpað þér með? Sendu mér endilega línu. Ég hlakka til að heyra frá þér.

[![ProteraLogoHvitt](https://protera.is/hs-fs/hubfs/ProteraHvitttransp-1.png?width=225&height=150&name=ProteraHvitttransp-1.png "ProteraLogoHvitt")](https://protera.is/?hsLang=is)

- [Þjónusta](https://protera.is?hsLang=is#Serhaefing)
- [Námskeið](https://protera.is/is/ahrifarikar-kynningar-namskeid?hsLang=is)
- [Tækni](https://protera.is/fyr?hsLang=is)
- [Um mig](https://protera.is?hsLang=is#Ummig)

 

 Skýrari fókus. Betri ákvarðanir. Sterkari framkvæmd. 

<https://www.facebook.com/profile.php?id=61584022053169><https://www.linkedin.com/company/protera-radgjof/><https://protera.is/samband?hsLang=is>

Protera ehf.  © 2025 Protera. [Skilmálar og persónuvernd.](https://protera.is/skilmalar)